top of page

Fríða Ísberg er rithöfundur og skáld.
Verk hennar eru ljóðabækurnar Slitförin og Leðurjakkaveður, smásagnasafnið Kláði og skáldsagan Merking og hafa hlotið tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Fjöruverðlaunanna og hlotið Bóksalaverðlaunin í flokki ljóða og flokki skáldverka. Fríða hlaut Íslensku Bjartsýnisverðlaunin 2021
og Per Olov Enquist verðlaunin 2022.
Með Svikaskáldum hefur hún gefið út þrjár ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Verk hennar hafa verið seld til 16 málsvæða, og sögur hennar birst The Iowa Review, The Southern Review, Words without Borders og PRISM International. Auk þess hefur hún af og til skrifað bókmenntagagnrýni fyrir
Times Literary Supplement.

bottom of page